TPO bannið á mannamáli 💅🏻

Hvað er TPO og af hverju er verið að banna það?

-TPO (Trimethylbenzoyl Diphenylphosphine Oxide) er ljósgeysla virkt efni (photo initiator) sem er notað til þess að herða efni í UV eða LED ljósi.

Efnið hefur verið flokkað sem CMR-efni í flokki 1B og því ekki lengur hægt að nota það í snyrtivörur.

 

Hvernig veit ég hvort vara innihaldi TPO?

-Vörur hjá okkur sem innihalda ekki TPO eru merktar annaðhvort “TF” eða “THF” (TF: TPO FREE, THF: TPO og HEMA FREE)

 

Hvar gildir TPO bannið?

-TPO bannið á aðeins við um lönd innan Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Því mun sala og framleiðsla snyrtivara sem innihalda TPO halda áfram víðsvegar um heiminn. 

 

Er hættulegt að nota vörur sem innihalda TPO?

-Samkvæmt Evrópsku rannsóknarnefndinni um öryggi neytenda (SCCS): Nei.

Árið 2014 mat rannsóknin SCCS/1528/14 notkun TPO í naglavörum ítarlega og komst að þeirri niðurstöðu að það væri öruggt til notkunar í atvinnuskyni allt að 5%. En Flokkunar-, merkingar- og pökkunar reglugerð Evrópusambandsins (CLP) flokkar efni eftir mestu hugsanlegu hættu sem þau kunna að valda. Óháð því hvort unnið sé rétt með efnin.

Ef við myndum bera saman við skæri þá myndi CLP meta þau sem hættulega vöru vegna þess að ef þau eru ekki notuð rétt geta þau valdið skaða. Á meðan sömu skærin í réttum höndum og með rétt handbrögð myndu ekki valda skaða.

 

Hef ég stofnað mér eða öðrum í hættu með því að nota efni sem innihalda TPO?

-Það gildir í rauninni það sama með TPO og hvaða önnur efni sem finnast í gel/akríl vörum: Ef varan er notuð rétt þá er ekkert að óttast. Vertu bara dugleg/ur/t að varast húðina, nota hanska þegar þú vinnur og hreinsa öll yfirborð fyrir og eftir þjónustu til að halda þér og kúnnanum öruggum.

 

Sérhver evrópsk vara hefur gengist undir ítarlegt öryggismat af viðurkenndum eiturefnafræðingi. Ef það mat hefði ekki uppfyllt öryggisskilyrðin hefði varan aldrei komið á evrópskan markað. Nú er bara verið að uppfæra lög til að tryggja en meira öryggi.

Deildu þessu:

Scroll to Top
0