Um Okkur
LUXA ehf. er umboðsaðili fyrir vörumerkin Crystal Nails, Marilynails, LuxLash og nú síðast Luxoya. Öll þessi vörumerki eru alþjóðlega viðurkennd vörumerki frá Ungverjalandi og vinna stöðugt að því að þróa nýjar vörur og tækni til að skara fram úr á sínu sviði. LUXA er stolt af því að margir fulltrúar vörumerkjanna hafa náð stórkostlegum árangri á alþjóðavettvangi keppna. LUXA er ákveðið í að veita hágæða vörur ásamt öllum þeim nýjungum sem völ er á. Við bjóðum upp á mikið úrval af litum, efnum og verkfærum sem henta öllum naglafræðingum, hársnyrtum, förðunarfræðingum, og þörfum viðskiptavina þeirra, og svo almennum viðskiptavinum okkar.
LUXA hefur verið starfandi á Íslandi frá árinu 2018 og er það Sylvía Daníelsdóttir sem er umboðsaðili merkisins hér á landi. Síðan þá hefur LUXA stækkað mikið og eru starfsmenn fyrirtækisins staðráðin í því að þjálfa og þróa stöðugt eigin færni. Þetta gerum við til að tryggja að viðskiptavinir sem og nemendur okkar geti alltaf sótt sér upplýsingar um nýjungar í naglaheiminum hér hjá okkur.
LUXA er með frábæra vefverslun ásamt stórri og glæsilegri verslun á Suðurlandsbraut 52 (Bláu húsin Faxafeni). Einnig bjóðum upp á námskeið sem henta öllum, hvort sem þú ert byrjandi eða vilt bæta við þig þekkingu. Mikil áhersla er lögð á að nemandi fái þann tíma með kennaranum sem hann þarf og erum við alltaf til í að svara þeim spurningum sem upp koma, hvort sem það er fyrir eða eftir námskeið.
Í verslun okkar starfar dásamlegt starfsfólk sem vill allt fyrir viðskiptavininn gera, og leggur sig mikið fram í að veita faglega ráðgjöf. Til okkar eru allir velkomnir, hvort sem það eru lærðir naglafræðingar, hársnyrtar, förðunarfræðingar eða þeir sem vilja nota professional vörur heima við.

Sylvía Daníelsdóttir
Eigandi, naglafræðingur og hársnyrtimeistari

Maríanna Þrastardóttir
Verslunarstjóri og naglafræðingur

Alexandra Líf Samúelsdóttir
Afgreiðsla, markaðsfulltrúi og
naglafræðingur

Elín Björk Sigurþórsdóttir
Afgreiðsla og
naglafræðingur

Sylvía Rós Arnardóttir
Afgreiðsla, naglafræðingur, augnhárafræðingur og snyrtifræðinemi

Elektra Hera Viktorsdóttir
Afgreiðsla, naglafræðingur, augnhárafræðingur, förðunarfræðingur og snyrtifræðinemi